Ein breyting á stjórn MN eftir aðalfundFréttatilkynning - - Lestrar 92
Engar breytingar urðu á kjörnum fulltrúum frá samstarfsfyrirtækjum í stjórn Markaðsstofu Norðurlands, eftir aðalfund sem haldinn var á Hótel Kea, mánudaginn 2. júní.
Laus voru tvö sæti á Norðurlandi eystra og eitt á Norðurlandi vestra, en engin framboð bárust gegn sitjandi stjórnarmönnum í stjórn MN, sem gáfu kost á sér áfram. Því fór svo að Viggó Jónsson frá Drangeyjarferðum var sjálfkjörinn í það sæti sem var laust á Norðurlandi vestra, og þau Sara Sigmundsdóttir frá Akureyri Whale Watching og Ármann Örn Gunnlaugsson frá Geosea í sætin sem voru laus á Norðurlandi eystra.
Á fundinum var einnig tilkynnt að Hlynur Jóhannsson verður fulltrúi SSNE í stjórn og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir verður áfram fulltrúi SSNV í stjórn.
Tvö framboð bárust um varamenn í stjórn, frá Tómasi Árdal hjá Arctic Hotels og Þorbjörgu Jóhannsdóttur frá Höldi. Bæði voru þau varamenn áður og þar sem engin önnur framboð voru þau sjálfkjörin til eins árs.
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands 2025-2026 er eftirfarandi: Viggó Jónsson -Drangeyjarferðir, Sara Sigmundsdóttir - Elding Hvalaskoðun, Ármann Örn Gunnlaugsson - Geosea, Örn Arnarson - Hótel Laugarbakki, Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir - Berjaya hótel. Fulltrúi SSNE er Hlynur Jóhannsson og fulltrúi SSNV er Sveinbjörg Rut Pétursdóttir. Varamenn: Tómas Árdal - Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir - Höldur.
Á fundinum var farið yfir störf Markaðsstofu Norðurlands árið 2024.