Dönsuđu, sungu, brostu og svitnuđu til styrktar góđu málefniAlmennt - - Lestrar 501
Bleikt zumbapartý var haldiđ í íţróttahöllinni sl. laugardag ţar sem á fjórđa tug kvenna dansađi zumba til styrktar góđu málefni.
"Ég ákvađ ţegar ég náđi mér í ţjálfararéttindin ađ ég skyldi einhvern tímann bjóđa í bleikt zumbapartý og ekki bara til hafa sjóđheitt og skemmtilegt partý heldur einnig ađ láta gott af mér leiđa í leiđinni.
Og lét ég verđa af ţví á laugardaginn og fór mćtingin langt fram úr mínum björtustu vonum og söfnuđust rúmlega 80 ţúsund krónur". Segir Jóhanna Svava Sigurđardóttir zumbakennari en peningurinn rennur til Krabbameinsfélags Suđur-Ţingeyinga.
En hvađ er Zumba ?
"Zumba er sambland af dansi og líkamsrćkt í takt viđ suđrćna, hressa og skemmtilega tónlist. Sporin eru einföld og ţess vegna geta ALLIR veriđ međ og ţađ er ALDREI of seint ađ byrja en ég kynntist ţessu hjá Evu Reykjalín á Akureyri. Síđar fór ég í tíma hjá Jóa og Theu í Valsheimilinu í Reykjavík og eftir ţađ ákvađ ég ađ ég skyldi verđa zumbakennari.
Ég tók réttindin hjá hollenskum kennara sem kom hingađ til lands í fyrra vor og startađi ég svo mínu fyrsta námskeiđi í október í fyrra. Til ađ gera langa sögu stutta ţá var bara ekkert aftur snúiđ, ég hafđi fundiđ hreyfingu sem ég hreinlega elska". Segir Jóhanna Svava sem vill koma á framfćri ţökkum til ţeirra frábćru kvenna sem komu og dönsuđu međ henni á laugardaginn.
Jóhanna Svava er međ zumbatíma í litla sal Íţróttahallarinnar á ţriđjudögum og fimmtudögum kl.18:10.
Bleikt Zumbapartý í Íţróttahöllinni.
Edda Björg Sverrisdóttir gjaldkeri Krabbameinsfélags Suđur-Ţingeyinga tók viđ styrknum úr hendi Jóhönnu Svövu í dag.