Christina Settles gengin til liðs við VölsungÍþróttir - - Lestrar 556
Á dögunum skrifaði Christina Settles undir samning við kvennalið Völsung um að leika með liðinu í 1. deildinni í sumar.
Í tilkynningu segir að Christina sé 24 ára öflugur miðjumaður og komi til með að styrkja lið Völsungs mikið.
Græni herinn heyrði í henni eftir undirskriftina og leyfum henni að kynna sig betur fyrir Völsungum nær og fjær:
Hver er Christina Settles, hvaðan er hún og hvar hefur hún verið að spila fótbolta?
Ég er frá Oceanside, California, USA. Ég spilaði fyrir Pepperdine háskólann í fjögur ár og með West Coast Futbol Club þar á undan. Spilaði einnig með ríkissliðinu CalSouth, Region IV liðinu og hef tekið þátt í æfingabúðum yngri landsliða.
Hvernig leikmaður er Christina?
Ég er drífandi og teknískur leikmaður. Vil reyna að stjórna hraða leiksins og tel það skyldu mína að þekkja vel inn á samherja mína svo mitt framlag hjálpi liðinu okkar eins vel og mögulegt er.
Fyrirmyndir í fótboltanum?
Fyrirmynd mín í fótbolta er fyrrverandi liðsfélagi minn hjá Pepperdine, Bri Visalli. Hún var ári á undan mér svo ég fylgdist með henni í eitt ár áður en við spiluðum saman. Ákveðnasti og ástríðufyllsti leikmaður sem ég hef nokkurn tímann spilað með og eru þá ótaldir knattspyrnuhæfileikar hennar. Hún var kraftmikill leiðtogi sem bar virðingu fyrir og studdi alla sína samherja. Eftir útskrift fór hún og spilaði með West Ham í eitt ár en spilar nú fyrir Birmingham.
Uppáhalds lið í enska boltanum?
Uppáhaldsliðið mitt í enska er Liverpool. Þjálfarinn minn í háskólaboltanum er grjótharður Liverpool aðdáandi og ég held að hann hafi smitað mig eftir að hafa þjálfað mig í fjögur ár í Pepperdine.
Markmið þín og væntingar í fótboltanum?
Aðalmarkmið mitt er að bæta mig stöðugt áfram. Ég legg mikið á mig til að ná langt og meðan ég legg hart að mér og gef alltaf mitt besta þá leyfi ég fótboltanum að leiða mig áfram þangað sem hann vill. Ég elska að spila og vil gera það eins lengi og ég get.
Af hverju Ísland? Af hverju Völsungur?
Ísland er svo fallegt! Ég gerði í raun engar sérstakar kröfur um staðsetningu við umboðsmanninn minn en þegar hann stakk upp á Völsungi á Húsavík þá lagðist ég í smá rannsóknir og varð strax ástfangin! Ég spilaði líka með einni í Pepperdine sem er frá Íslandi og hún bar þessu mjög vel söguna. Ég er viss um að mér á eftir að líka vel þarna.
Vissirðu eitthvað um Húsavík eða Ísland?
Ekkert. Bara þetta almenna túristadæmi sem ég fann á Google. Hvalaskoðun, heita hveri og Norðurljósin!





























































640.is á Facebook