17. apr
Björn og Hlynur Borgarhólsskólameistarar í skákÍţróttir - - Lestrar 322
Skólamótið í skák í Borgarhólsskóla á Húsavík fór fram í dag. Hlynur Snær Viðarsson vann sigur í eldri flokki og Snorri Hallgrímsson varð í öðru sæti.
Björn Gunnar Jónsson vann sigur í yngri flokki, Bergþór Snær Birkisson varð í öðru sæti og Páll Svavarsson varð í þriðja sæti.
Hlynur, Snorri, Björn, Bergþór og Páll hafa því unnið sér keppnisrétt á sýslumótinu í skólaskák sem verður haldið í Litlulaugaskóla í Reykjadal þriðjudaginn 24 apríl nk.
Stöðu efstu keppenda og öll úrslit má sjá á heimasíðu Goðans.