Axel Tryggvi dúx Framhaldsskólans á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 140
Laugardaginn 24. maí síðastliðinn útskrifuðust 23 nemendur frá Framhaldsskólanum á Húsavík.
Nítján nemendur luku stúdentsprófi, þrír luku námi af heilsunuddbraut og einn nemandi lauk bæði stúdentsprófi og námi af heilsunuddbraut.
Frá þessu segir á heimasíðu skólans en mikið var um dýrðir þennan daginn og nemendur verðlaunaðir fyrir frábæran árangur.
Dúx skólans var Axel Tryggvi Vilbergsson sem gerði sér lítið fyrir og lauk stúdentsprófi með meðaleinkunina 10.
Axel Tryggvi er hér með hluta af verðlaununum sínum.
Dagurinn var þó einnig mikil tímamót þar sem Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari útskrifaði sinn síðasta hóp. Hún lætur af störfum í sumar eftir sjö ár í embætti skólameistara FSH. Valgerður var kvödd af aðstoðarskólameistara, Halldóri Jóni Gíslasyni og fyrrum formanni skólanefndar Hjálmari Boga Hafliðasyni.
Valgerður flutti ræðu þar sem hún fór yfir veturinn, starfið og brýndi fyrir viðstöddum mikilvægi stofnunarinnar, FSH, fyrir samfélaginu okkar.
Að lokinni athöfn var viðstöddum boðið til veislu í húsnæði FSH. Þar er að myndast skemmtileg hefð sem vonandi er komin til að vera segir á heimasíðunni.
Nýstúdentar FSH 2025 ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.