22. jún
Áttaði sig ekki á aðstæðum og endaði ofan í skurðiAlmennt - - Lestrar 489
Hún endaði ekki vel ökuferðin hjá ferðamanninum erlenda sem ók niður slóðann austan í Húsavíkurhöfðanum og ætlaði þar upp á Norðausturveg.
Meðfram veginum er verið að grafa fyrir heitt og kalt vatn og skólp fyrir iðnaðarsvæðið á Bakka. Og þar enda ökuferðin, þ.e.a.s. ofan í skurðinum.
Að sögn lögreglu var ökumaðurinn einn á ferð og áttaði sig ekki á aðstæðum Hann slasaðist ekki en var að vonum mjög brugðið. Bíllinn er hinsvegar talsvert skemmdur eins og sjá má myndinni hér að neðan.