Árshátíð unglingadeilda BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 743
Árshátíð unglingadeilda Borgarhólsskóla var haldin um síðustu helgi en undirbúningur hafði staðið yfir síðan snemma í haust undir stjórn Unnars Þórs og Kristjönu Maríu.
Að venju lagði árshátíðarnefnd skólans talsvert í skreytingar á salnum og Erling Þorgrímsson var mættur til að hafa yfirumsjón með ljósum og öðrum tæknimálum.
Við það vinna einnig nemendur í tæknivali skólans. Allar bekkjardeildir voru með skemmtiatriði sem tókust afar vel og skemmtiatriði kennara sló að sjálfsögðu í gegn. Ekki má gleyma Stjörnumessunni sem flestum finnst ómissandi. Þar eru nokkrir tilnefndir fyrir „ýmsa kosti“ og einn útvalinn. Nemendur skemmtu sér hið besta og voru til fyrirmyndar í alla staði.
http://www.borgarholsskoli.is/
Ljósmyndari 640.is var á staðnum í upphafi árshátíðar og tók myndir af þeim sem það vildu.
Árshátíðarnefndin ásamt Unnari Þór og Kristjönu Maríu.
Þeir voru hressir Jón, Jón og Jón.
Og það voru kennararnir líka og slógu í gegn með sitt skemmtiatriði.
Stelpurnar voru allar flottar og fínar en fleiri myndir er hægt að skoða hér