Arnþór æfði og spilaði með Fylki

Fram kemur á fótbolta.net í dag að Arnþór Hermannsson hafi leikið með Fylki þegar liðið tapaði 2-1 gegn Fjölni í leik um 3. sætið á Bose mótinu.

Arnþór æfði og spilaði með Fylki
Íþróttir - - Lestrar 385

Arnþór í leik með Völsungi.
Arnþór í leik með Völsungi.

Fram kemur á fótbolta.net í dag að Arnþór Hermannsson hafi leikið með Fylki þegar liðið tapaði 2-1 gegn Fjölni í leik um 3. sætið á Bose mótinu.

Arnþór, sem er tvítugur miðjumaður og hefur leikið með Völsungi allan sinn feril, æfði með Árbæjarliðinu í síðustu viku.

Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis sagði við Fótbolta.net í dag að ekki hafi verið tekinn ákvörðun um það hvort samið verði við Arnþór eða ekki.

Hér má sjá frétt Fótbolta.net í heild sinni.




  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744