Ármann Örn ráðinn launafulltrúi Norðurþings tímabundið

Ármann Örn Gunnlaugsson hefur verið ráðinn í tímabundið starf launafulltrúa hjá Norðurþingi.

Ármann Örn Gunnlaugsson.
Ármann Örn Gunnlaugsson.

Ármann Örn Gunnlaugsson hefur verið ráðinn í tímabundið starf launafulltrúa hjá Norðurþingi. 

Ármann er með BSc gráðu í viðskipta- og hagfræði frá Birmingham-Southern College í Birmingham Alabama og MSC gráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Húsavík Adventures ehf. og þar áður hjá Norðursiglingu hf. sem verkefna- og mannauðsstjóri og sölu- og markaðsfulltrúi ásamt því að sinna bókhaldi, reikningagerð og innheimtu. Ármann hefur því fjölbreytta og góða reynslu af ýmsum störfum.

Á heimasíðu Norðurþings er Ármann boðinn velkominn til starfa.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744