09. sep
Ármann Örn ráðinn launafulltrúi Norðurþings tímabundiðAlmennt - - Lestrar 392
Ármann Örn Gunnlaugsson hefur verið ráðinn í tímabundið starf launafulltrúa hjá Norðurþingi.
Ármann er með BSc gráðu í viðskipta- og hagfræði frá Birmingham-Southern College í Birmingham Alabama og MSC gráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Húsavík Adventures ehf. og þar áður hjá Norðursiglingu hf. sem verkefna- og mannauðsstjóri og sölu- og markaðsfulltrúi ásamt því að sinna bókhaldi, reikningagerð og innheimtu. Ármann hefur því fjölbreytta og góða reynslu af ýmsum störfum.
Á heimasíðu Norðurþings er Ármann boðinn velkominn til starfa.