Anna María keppir um brons í bogfimi á EM

Anna María Alfreðsdóttir mun keppa um brons verðlaun á Evrópumeistaramótinu í bogfimi kl 11:30-12:00 að staðar tíma í Koper í Slóveníu laugardaginn 19

Anna María keppir um brons í bogfimi á EM
Íþróttir - - Lestrar 129

Anna María Alfreðsdóttir. Lj. archery.is
Anna María Alfreðsdóttir. Lj. archery.is

Anna María Alfreðsdóttir mun keppa um brons verðlaun á Evrópumeistaramótinu í bogfimi kl 11:30-12:00 að staðar tíma í Koper í Slóveníu laugardaginn 19 febrúar.

640.is hefur áður sagt frá afrekum Önnu Maríu í bogfimi en hún er ættuð frá Húsavík. Foreldrar hennar eru Alfreð Birgisson og Brynja Dröfn Tryggvadóttir.

Greint er frá þessu á bogfimivefnum archery.is en Anna María sem æfir með íþróttafélaginu Akri á Akureyri, sigraði í dag í átta manna úrslitum gegn Pil Munk Carlsen frá Danmörku 143-142 í mjög spennandi leik.

Anna hélt því áfram í undanúrslit trissuboga kvenna U21.

Í undanúrslitum um hver myndi fara í gull eða brons leikinn keppti Anna gegn Lok Songul frá Tyrklandi í gífurlega spennandi leik þar sem þær skiptust á að halda forskotinu. Lok var með 2 stiga forskot eftir næst síðustu umferðina. Í síðustu umferðinni gaf sú Tyrkneska ekkert færi á sér og skaut fullkomið skor 30 og Anna tapaði því 145-141.

Anna mun því keppa í brons úrslitum á laugardaginn.

Anna er aðeins annar íslenski keppandinn sem mun keppa um verðlaun í U21 flokki á Evrópumeistaramóti. Guðbjörg Reynisdóttir gerði það fyrst árið 2019, en Guðbjörg mun keppa seinna í dag í átta manna úrslitum fullorðinna á EM.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744