Alþjóðadagur foreldra

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Í dag er alþjóðadagur foreldra. Hlutverkið er ærið en æ minni tími til að sinna því? Skólar, íþróttafélög og

Alþjóðadagur foreldra
Aðsent efni - - Lestrar 130

Hjálmar Bogi Hafliðason.
Hjálmar Bogi Hafliðason.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Í dag er alþjóðadagur foreldra.

Hlutverkið er ærið en æ minni tími til að sinna því? Skólar, íþróttafélög og aðrir fagaðilar hafa tekið við hlutverki foreldra að einhverju leyti sem uppalendur.

Foreldri þarf ekkert að læra til að vera heldur aðeins gera. Það segir í fyrra markmiði foreldrasáttmálans sem er víða í notkun: „Að vekja foreldra og forráðamenn til vitundar um mikilvægi þess að sýna börnum og unglingum umhyggju, virkan stuðning og setja þeim skýr mörk.‟ Ég vil hvetja foreldra  í Norðurþingi að kynna sér sáttmálann. Svo skora ég á ykkur að taka hann upp, beita honum og iðka hann. Það er mikilvægt fyrir foreldra að hafa vettvang til að hittast, heyra frá öðrum hvernig þeir takast á við uppeldi. Ræða sömuleiðis þau gildi og viðhorf sem við teljum eiga erindi í foreldrasamfélagið. Foreldrasáttmálinn getur nýst sem öflugt stuðningstæki í uppeldinu.

Allt sem ætlast er til af foreldrum

Það er að mörgu að hyggja og hver telur sína leið þá bestu við uppeldið. Útivistartími, svefn, þátttaka í frístundastarfi og íþróttum, vinahópur, námið, vímuefni, sjálgfstraust, eftirlit og reglur, alnetið og samfélagsmiðlar og persónueinkenni. Já, viðfangsefnin eru mörg rétt eins og börnin sjálf.

Sömuleiðis vil ég hvetja foreldra til að lesa átjándu og nítjándu grein grunnskólalaga sem fjalla einmitt um foreldra. Þetta er skýrt; foreldrar skulu gæta hagsmuna barna sinna á skólaskyldualdri. Og svo þetta; Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber þeim að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra.

Sterkustu bandamenn skólanna eru foreldrar

Væntir skólinn einhvers af foreldrum? Já. En það er sömuleiðis hlutverk skóla að upplýsa foreldra hvernig þeir geta stutt við barn sitt, t.d. með því að eiga samræður heima um nám og skóla. Að hlusta. Nám í dag er ekki eins og nám fyrir átján árum. Skólinn væntir þess að foreldrar kynni sér nám barna sinna og þær reglur sem gilda í skólanum. Það er algjörlega nauðsynlegt að foreldrar tali af virðingu um skólann og námið svo börnin heyri. Foreldrar þurfa að fá tækifæri til að taka þátt í námi barna sinna og skólastarfinu almennt. Að halda í gamlar hugmyndir um skólann er hætt við að það hindri nýjungar og tilraunir í skólastarfinu. Þróun er nauðsynleg til að tryggja framtíð nemenda.

Hvað viltu segja við sjálfan þig sem barn?

Já, þau læra af okkur fullorðna fólkinu. Veltu því fyrir okkur hvernig fyrirmyndir við erum. Leyfum við okkur að tala illa um annað fólk, önnur börn, þegar börnin okkar heyra? Eða um vinnuna okkar og samstarfsfélaga. Hvað viltu segja við sjálfan þig þegar þú varst tólf ára ef þú vissir allt sem þú veist í dag? Hvaða boðskap berum við áfram til næstu kynslóðar í hraðadýrkandi neysluveröld? Eitt helgasta verkefni fólks; að eignast barn og oftar en ekki snýst verkið um foreldrana en ekki barnið. Engin forskrift, engar leiðbeiningar eða gefin tilsögn. Fullt af annarra manna áliti, reynslu, mati eða dómi.

 Hjálmar Bogi Hafliðason

Kennari

Sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744