Álftanes á toppinn

Völsungur tók á móti Álftanesi í Úrvalsdeild kvenna á Húsavík í dag. Fyrir leikinn var Áftanes í 2. sæti með 20 stig og Völsungur í 4. sæti með 16 stig.

Álftanes á toppinn
Íþróttir - - Lestrar 116

Völsungar verjast.
Völsungar verjast.
Völsungur tók á móti Álftanesi í Úrvalsdeild kvenna á Húsavík í dag. Fyrir leikinn var Áftanes í 2. sæti með 20 stig og Völsungur í 4. sæti með 16 stig. 
 
Leikurinn fór jafnt af stað en í stöðunni 5-5 í fyrstu hrinu tóku Völsungar á flug og sigldu jafnt og þétt fram úr Álftanesi sem áttu ekki svör við sterkri sókn og vörn heimastúlkna. Völsungur kláraði fyrstu hrinu 25-13.
 
Í hrinu tvö snerist dæmið við og Álftanes var yfir allan tímann og klárði hrinuna 17-25. Völsungar áttu frumkvæðið í byrjun þriðju hrinu en Álftanes jafnaði í 5-5 og létu forystuna ekki af hendi út alla hrinuna sem endaði 20-25 fyrir gestina.
 
Fjórða hrina var spennandi og jöfn allt þar til í stöðunni 19-20 fyrir Álftanes að gestirnir skelltu í lás og kláruðu síðustu 5 stigin og unnu hrinuna og leikinn þar með 1-3. 
 
Álftanes tekur því öll 3 stigin með sér frá Húsavík og tyllir sér með því á topp úrvalsdeildarinnar með 23 stig. 
 
Stigahæstar í liði Völsungs voru Nikkia Benitez með 20 stig og Ana Rita Branco með 14 stig og í liði Álftanes voru það Michelle Traini með 23 stig og Sladjana Smiljanic með 10.
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
 
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744