Æft fyrir jólasýninguna í Tónasmiðjunni

Mikið er um að vera í Tónasmiðjunni um þessar mundir þar sem stór og fjölbreyttur hópur æfir stíft fyrir jólasýninguna "Jólin þín og mín".

Æft fyrir jólasýninguna í Tónasmiðjunni
Almennt - - Lestrar 164

Mikið er um að vera í Tónasmiðjunni um þessar mundir þar sem stór og fjölbreyttur hópur æfir stíft fyrir jólasýninguna "Jólin þín og mín".

Sýningin verður í Húsavíkur-kirkju nk. miðvikudagskvöld, 15. desember, og hefst  kl 20:00.

Söngvarar og hljóðfæraleikarar flytja þar jólalög úr ýmsum áttum ásamt gestaflytjendunum Hrafnhildi Ýr og Rúnari Eff.

Þessi stórglæsilegi hópur mun spila og syngja inn jólin og koma þér í sannkallað hátíðarskap á aðventunni. Miðaverð eru aðeins 2.500 kr og rennur ágóði af sýningunni til Velferðarsjóðs Þingeyinga sem árlega hjálpar þeim sem minna mega sín að halda gleðileg jól.

Miðasala er í gangi inn á tonasmidjan@gmail.com

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744