Æfingar hafnar á Sitji Guðs englarFréttatilkynning - - Lestrar 601
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Húsavíkur á leikritinu Sitji Guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Leikstjórar eru þau Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir.
Greiðlega gekk að finna fólk í helstu hlutverk og þar má sjá ný andlit í bland við reynslubolta eins og Gunnu Stínu, Hilmar Val og Sigga Illuga. Sjö ungmenni leika aðalhlutverk sem systkinin í sögunni og ríkir mikil eftirvænting í hópnum.
Sagan segir frá fátækri 10 manna fjölskyldu á stríðsárunum og spaugilegum samskiptum þeirra við vini og nágranna.
Áætlað er að frumsýna í byrjun mars.
Hér má sjá myndir frá fyrsta samlestri.
Á fyrsta samlestri.
Systkinin verða leikin af þessum ungmennum, fv. Huginn Ágústsson, Sverrir Jóhannsson, Jóhannes Óli Sveinsson, Viktor Freyr Aðalsteinsson, Emilía Guðrún Brynjarsdóttir, Kristný Ósk Geirsdótir og Bergdís Björk Jóhannsdóttir.
Verðandi nunnur, fv. Adrienne Davis, Ingibjörg Ósk Ingvarsdóttir og Agnes Jóakimsdóttir.