8. nóvember er alþjóðlegur forvarnardagur gegn eineltiAlmennt - - Lestrar 129
Í dag, 8. nóvember er alþjóðlegur forvarnardagur gegn einelti líkt og ár hvert.
Nemendur Borgarhólsskóla klæddust grænu með vísan í græna karlinn en hann er verndari í Eineltishring Olweusar.
Hann stígur upp og mótmælir einelti og stendur með þeim sem eru lagðir í einelti.
Nemendur hittust við gamla andyri skólans og gengu fylktu liði í gegnum bæinn að Húsavíkurkirkju þar sem neðsta hluta Stóragarðs hafði verið lokað.
Þar stóðu nemendur saman og höfnuðu einelti með því að mynda orðin; EINELTI, NEI TAKK. Nemendur sungu síðan saman skólasönginn áður en gengið var aftur upp í skóla.
Í tilefni af forvarnardeginum mun Forvarna,- og fræđslustarfið ÞÚ skiptir máli í Norðurþingi standa fyrir opnu húsi í Bjarnahúsi kl 20:00. Þar verður tónlistar og fræðsludagskrá gegn einelti.
Ljósmynd Gaukur Hjartarson.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.