72 verkefni hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystraAlmennt - - Lestrar 193
Í byrjun febrúar fór fram rafræn úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra þar sem 72 verkefni voru styrkt, en samtals var úthlutað 73,3 m.kr.
Fram kemur á vef SSNE að alls bárust 172 umsóknir og hafa aðeins einu sinni áður verið fleiri umsóknir í sjóðinn.
Formaður úthlutunarnefndar Hilda Jana Gísladóttir hafði orð á því í erindi sínu á úthlutunarhátíðinni að vinna nefndarinnar hefði verið einstaklega erfið í ár og að óskandi hefði verið að meira fjármagn væri til úthlutunar.
Styrkirnir skiptast í,
12 Stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar
34 Menningarstyrki
26 Atvinnu og nýsköpunarstyrki.
Tekinn hefur verið saman bæklingur með yfirliti yfir öll þau verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni. Bæklinginn má finna hér.