1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar.

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar
Almennt - - Lestrar 96

Kvenfélagskonur á landsţingi.
Kvenfélagskonur á landsţingi.

1. febrúar er Dagur kvenfélags-konunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, (1930) var formlega gerđur ađ degi kvenfélagskonunnar áriđ 2010.

Var ţađ gert til ađ vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár.

Ţađ var enda löngu tímabćrt ađ kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu.

Dagurinn hefur fest sig í sessi undanfarin ár og er hans nú getiđ á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum. Kvenfélagasamband Íslands í samstarfi viđ RÚV og sveitarfélögin í landinu minnir á og vekur athygli á deginum í fjölmiđlum.

Á fésbókarsíđu Kvenfélagasambands Íslands eru kvenfélög og kvenfélagskonur hvattar til ađ muna eftir deginum og jafnvel gera sér dagamun hver og ein eđa saman, en einnig ađ vera tilbúnar til ađ taka á móti hamingjuóskum og athygli ţennan dag.

Ekki er ćtlast til ţess af kvenfélagskonum ađ ţćr standi sjálfar ađ hátíđahöldum ţennan hátíđisdag. Mörg kvenfélög minnast dagsins ţó međ ýmsum hćtti og er ţađ auglýst innan kvenfélaganna og hérađssambanda ţeirra.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744