Hsavk - enn langbest!Stra & sntt slunni - Olga Hrund - Lestrar 924 - Athugasemdir (0)
Hér kemur því pistill sem var birtur fyrir akkúrat ári síðan - ég vona að þið njótið en ég vona einnig að ég þurfi ekki að birta hann aftur að ári.
Fyrir viku byrjaði ég á pistli en einhvernveginn kom andinn ekki almennilega yfir migog svo bara leið vikan á ógnarhraða og ég réði ekki neitt við neitt. Ég var samt byrjuð aðeins á honum og vissi alveg um hvað hann átti að vera. Nefnilega Húsavík og hversu mikið ég elska Húsavík og það að búa hér. Ég er svo heppin að hafa getað búið erlendis þó nokkrum sinnum og er alveg búin að losa mig við útlandabakteríuna og vil hvergi annarsstaðar vera en hér á minni elskulegu Húsavík.
Ævinlega fallegust!
Hvað er eiginlega í gangi í þessu landi og hvað í ósköpunum er þessir ráðamenn okkar að hugsa? Þegar ég byrjaði að fara erlendis fyrir allmörgum árum, búa þar og ferðast, þá var ég iðulega að rifna úr monti þegar ég var spurð hvaðan ég væri. Mér fannst Ísland nefnilega best í heimi og oftast fannst fólki mjög merkilegt að fá að hitta mig. Á ferðum mínum um Evrópu síðastliðin tvö ár hef ég hinsvegar bara reynt að sleppa því að nefna hvaðan ég er – nema auðvitað þegar ég er á Íslandi; þá er ég sko enn montin af því að vera Húsvíkingur og Þingeyingur og því ætla ég að halda áfram. Ég mun aldrei hætta að vera Þingeyingur; fullur af lofti og glaður með sitt og sína. Og ég bara tek það ekki í mál að sætta mig við þessa svívirðilegu framkomu gagnvart okkur.
Hér býr fullt af fólki sem er búið að hafa fyrir því að fara í burtu og mennta sig og flytja aftur heim og vill hér vera og nú á bara að gera okkur ókleift að búa hér. Hér býr líka fullt af fólki sem hefur búið hér alla sína tíð og þekkir ekkert annað. Hvert eigum við öll að fara? Við viljum hvergi fara, við viljum vera hér þar sem við eigum heima og við eigum alveg jafn mikinn rétt á mannsæmandi framkomu og aðrir Íslendingar.
Hér kemur uppskriftin sem ég ætla deila með ykkur núna og kemur hún úr smiðju minnar elskulegu mágkonu; Elínar Sigurðardóttur. Þetta er reyndar eiginlega engin uppskrift því þetta er svo rosalega einfalt og þægilegt.
Pönnukökubögglar með kjúklingi og kókosmjólk
f. 4-6
Kjúklingabringur eða lundir (ég notaði lundir í þetta skiptið)
1 bréf Fajitas krydd (athugið að ég notaði ekki allt bréfið, kryddið bara eftir smekk)
1 dós kókosmjólk
Karrý að vild
Fajitas pönnukökur
Ég skar bara niður lundirnar í bita og steikti þær á pönnu með smá ólífuolíu, hellti svo kókosmjólkinni
út á (ég notaði bara ca hálfa dósina því ég var bara að elda fyrir tvo – en þið getið bara prófað ykkur
áfram með það – bara passa að hafa nægan vökva) og skvetti smá karrý út á þetta og lét malla eitthvað á
pönnunni. Síðan tók ég pönnukökurnar og setti kjúklinginn í hverja og eina og passaði að hafa nóg af vökva með og loka
svo pönnukökunum þannig að vökvinn héldist vel inni í þeim. Pönnukökunum raðaði ég svo í eldfast mót og
stráði osti yfir, setti svo inn í ofn á ca 200 í ca 20 mínútur, passið bara að brenna ekki ostinn.
Þetta er eins einfalt og það gerist en svo meiriháttar gott að ég er búin að hugsa um þetta í viku og ætla að gera þetta
aftur við fyrsta tækifæri. Með þessu er gott að hafa hrísgrjón eða bygg og gott salat en mér finnst reyndar persónulega alveg nóg
að hafa bara salatið. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa með þessu mjög mikið af sýrðum rjóma og einnig er mjög gott
að drekka með þessu ísjökulkalt þingeyskt vatn. Verði ykkur að góðu!
Ég er sko ekki tilbúin að missa þetta útsýni - ó nei!
Engar umrur fundust fyrir essa frtt.