Steinbtspiparsteik fr Palla og stu

Kristjana Mara Kristjnsdttir skorai hjnakornin Pl Lindberg Bjrgvinsson og stu Sigurardttir a koma me nstu uppskrift og hr kemur gmst

Steinbtspiparsteik fr Palla og stu
Stra & sntt slunni - Hafr Hreiarsson - Lestrar 1134 - Athugasemdir (0)

Palli er alltaf  fiskinum.
Palli er alltaf fiskinum.

Kristjana María Kristjánsdóttir skoraði á hjónakornin Pál Lindberg Björgvinsson og Ástu Sigurðardóttir að koma með næstu uppskrift og hér kemur gómsæt uppskrift að steinbítspiparsteik.

 

Steinbítspiparsteik.

Steinbítur, roð og beinlaus

Grillolía ( Caj P. Orginal )

Svartur pipar

Grænmetiskraftur

Rjómi

 

 

Steinbítnum velt upp úr Caj P.grillolíu og steiktur á vel heitri pönnu í 2 –3 mínútur á hvorri hlið.

Kryddað með svörtum pipar. Rjóma bætt út á pönnuna ásamt grænmetiskrafti oghitinn lækkaður.

Látið malla þar til sósan er orðin hæfilega þykk.

 

 

Borið fram með léttsteiktum hrísgrjónum og fersku salati.

 

Hrísgrjón

Paprika rauð

Paprika græn

Rauðlaukur

Blaðlaukur

Sweet Chillisósa

Teriyakisósa

 

Léttsteikið grænmetið í olíu.

Bætið soðnum hrísgrjónum út í.

Léttsteikið, bætið Teriyaki og Sweet Chilli – sósum út á eftir smekk.

 

Verði ykkur að góðu.  Kveðja Ásta og Palli.

Við skorum á Ninnu og Gulla með næstu uppskrift.

 


  • Herna

640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744