Brskettur, humar og skkulaisla

tilefni 2ja ra afmlis 640.is tlum vi a byrja hr me njan matardlk dag og mun g, Olga Hrund Hreiarsdttir, sj um hann. Mr finnst mjg gaman

Brskettur, humar og skkulaisla
Stra & sntt slunni - Olga Hrund - Lestrar 830 - Athugasemdir (0)

Humarinn kominn  bori.
Humarinn kominn bori.

Í tilefni 2ja ára afmælis 640.is ætlum við að byrja hér með nýjan matardálk í dag og mun ég, Olga Hrund Hreiðarsdóttir, sjá um hann. Mér finnst mjög gaman að elda og enn skemmtilegra að borða og ætla ég að leyfa ykkur að fylgjast með mér og mínum við þá iðju. Þá hef ég gaman að því ferðast og mun það einnig fléttast inn í þetta í máli og myndum.

 

 

Fyrsta matarboðið sem hér verður sagt frá var haldið síðastliðið laugardagskvöld í tilefni afmælis 640.is og verð ég að segja að það heppnaðist sérdeilis vel og vonandi munu einhverjir nýta sér þessar uppskriftir. Þeir sem í þetta matarboð komu voru Haffi bróðir, Ella mágkona, mamma, pabbi, Anna Heba systir og ég auk tveggja lítilla frænkna.

 

             


Í forrétt var boðið upp á brúskettur en þær lærði ég að gera þegar ég bjó í Róm um árið og eru þær uppáhalds forrétturinn minn. Það er mjög einfalt að gera þær og einnig mjög hentugt því maður getur undirbúið þær fyrr um daginn ef það hentar manni betur – aðalmálið er að vera með ferskt og gott hráefni og gott brauð.


Brúskettur fyrir c.a. 6-8 manns

1 box konfekttómatar frá Hveravöllum
2-3 hvítlauksgeirar
Fersk basilíkulauf
Ólífuolía
Salt og pipar

Gott brauð – t.d. veronabrauð eða tómatbrauð

Ég sker tómatana smátt niður en tek hvítlauksgeirana bara í tvennt því ég vil helst sleppa því að borða hvítlaukinn en það má að sjálfsögðu saxa hann smátt ef fólk vill það frekar. Svo helli ég góðri ólífuolíu yfir þetta, krydda með salti og pipar og að lokum ríf ég ferska basiliku út í – hræri öllu saman og smakka til. Þetta geymi ég svo inni í ísskáp á meðan ég grilla brauðið í ofni með smá ólífuolíu ofan á. Þetta er svo borið á borð í sitthvoru lagi og fólk fær sér sjálft - þá getur hver og einn fengið sér eins mikið og hann lystir.

               

Í aðalrétt var grillaður humar í hvítlaukssmjöri með brauði og kletta- og mangósalati. Þessi uppskrift er ekki beint upp úr bók heldur hefur bara svona þróast með mér en auðvitað eru til margar uppskriftir að þessum rétti.

Humar fyrir 6-8 manns

2 kg humar

4 hvítlauksgeirar

200 gr smjör

Steinselja

1 sítróna

1 lime

1 poki klettasalat
1 mangó
 
Ólífuolía

Ég hreinsa humarinn þannig að ég klippi skelina, tek svo görnina úr og set kjötið ofan á skelina – og raða svo humrinum ofan á álpappír í ofnskúffu.

Síðan bræði ég 100 grömm af smjöri í litlum potti og pressa hvítlaukinn út í sem og smátt saxaðri steinselju. Ég pensla svo humarinn með smjörinu og leyfi honum að standa í einhvern tíma – fer allt eftir því hversu mikinn tíma ég hef. Mér finnst best að grilla humarinn í ofni og stilli ofninn því bara á hæsta hita á grillinu. Og set humarinn inn í þegar ofninn er tilbúinn. Mér finnst erfitt að segja til um tíma þar sem humarinn getur verið misstór og ofnarnir eru auðvitað mjög misjafnir – best er að fylgjast bara algjörlega með honum og passa að taka hann út áður en hann ofeldast – en við erum oftast að tala um örfáar mínútur.

 

Á meðan humarinn er að grillast bræði ég aftur 100 grömm af smjöri í sama potti og áðan og get því notað hvítlaukinn sem eftir er í pottinum. Þetta smjör set ég í skál á borðið og þá getur fólk fengið sér meira smjör ef það vill – t.d. mjög gott að setja það ofan á brauðið. Í þetta skiptið var ég með Veronabrauð og mér finnst það passa mjög vel með þessum rétti. Ég sker það niður í sneiðar, raða þeim á ofnplötu og grilla það í ofninum um leið og humarinn.

 Þegar humarinn er tilbúinn set ég hann á fallegt fat, strái ferskri steinselju yfir hann og set sítrónu – og limebáta á fatið og þá geta þeir sem vilja fengið sér og kreist yfir humarinn.

 

Þar sem humarinn er svo rosalega góður finnst mér best að hafa bara mjög einfalt salat með honum og í þetta skiptið var það klettasalat, mangó og smá ólífuolía – en það má auðvitað hafa hvaða salat sem er.

Með þessum tveim réttum er mjög gott að bjóða upp á ískalt hvítvín og vorum við með ADOBE Chardonnay.
Í eftirrétt bauð ég upp á frumraun mína í bakstri og held ég að þetta hafi bara heppnast ágætlega hjá mér – diskarnir fóru allavega tómir af borðinu. Þar sem ég er umkringd góðum bökurum þá hef ég ekkert þurft að vera að baka og bara einbeitt mér að matnum en undanfarið hef ég fundið vaxandi löngun til að fara baka muffur og smákökur. Þegar ég var á Akureyri um daginn þá fann ég þessa líka fínu bók “500 cupcakes & muffins” og þá vissi ég að nú yrði ekki aftur snúið; nú myndi Olga byrja að baka og er þessi uppskrift úr nýju bókinni með smávægilegum breytingum.

 

“Cholotate brownie cupcakes”

125 gr suðusúkkulaði

125 gr smjör (þeir segja ósaltað en ég hafði saltað)

2 egg

300 gr sykur (held að það megi alveg minnka þetta eitthvað)

1 tsk vanilludropar

115 gr hveiti

 Ég gerði deigið bara heima um daginn og tók það svo með mér í skál til Haffa og Ellu.

Ég byrjaði á því að bræða súkkulaðið og smjörið í örbylgjuofni í tvær mínútur – en í bókinni er talað um að gera það í skál yfir sjóðandi vatni. Síðan setti ég eggin, sykurinn og vanilludropana í hrærivél og hrærði þangað til þetta var orðið ljóst og þykkt. Þá bætti ég súkkulaðinu og smjörinu út í og svo að lokum hveitinu og hrærði þangað til þetta var allt vel blandað og fallegt. Í uppskriftinni er talað um 12 pappírs form en ég notaði leirskálar sem mega fara inn í ofn og gerði fyrir sex.  Það á að hita ofninn í 160 gráður og baka í 25 mínútur samkvæmt bókinni.

 Það er uppskrift að kremi í bókinni en við höfðum bara vanilluís og það var mjög gott.

Vonandi hafið þið haft gaman af og verði ykkur að góðu.

Kveðja, Olga Hrund.

 

 

 


  • Herna

640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744