Völsungspennar á loftiAlmennt - - Lestrar 361
Ungir Völsungar nýttu jólafríið afbragðsvel og skrifuðu undir nýja samninga við meistaraflokk karla í knattspyrnu.
Allir koma þeir upp í gegnum öflugt yngri flokka starf Völsungs. Elmar Örn er fæddur árið 2001 og á 11 leiki að baki fyrir meistara-flokk en hinir þrír eru fæddir árið 2002. Arnar Pálmi hefur spilað 40 leiki og skorað tvö mörk, Gunnar Kjartan hefur spilað 1 leik og Rafnar Máni 26 leiki.
Í tilkynningu segir að Völsungur hafi miklar væntingar til þessara ungu pilta því framtíðin á knattspyrnuvellinum er sannarlega þeirra. Þetta er fyrsta skref knattspyrnuráðs í endurnýjun samning öa við leikmenn meistaraflokks og vænta má frekari fregna á nýju ári.
Fv. Rafnar Máni Gunnarsson, Arnar Pálmi Kristjánsson, Gunnar Kjartan Torfason og Elmar Örn Guðmundsson.