18. maí
Völsungar úr leik í BorgunarbikarnumÍþróttir - - Lestrar 506
Völsungar eru úr leik í Borgunarbikar karla eftir 7-1 ósigur gegn Grindavík í gærkveldi.
Eyþór Traustason skoraði mark Völsungs en William Daniels skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn og Sam Hewson þrjú.
Aðstæður voru víst skelfilegar þar sem vindurinn réði lögum og lofum allan leikinn.
Næsti leikur strákanna í deildinni er gegn Hetti á Fellavelli nk. laugardag kl. 14:00
Stelpurnar leika sinn fyrsta heimaleik í 2. deildinni annað kvöld kl. 19:15 og eru mótherjar þeirra Einherji frá Vopnafirði.