11. des
Vel mætt í jólakaffi stéttarfélagannaAlmennt - - Lestrar 404
Að venju var vel mætt í jólakaffi stéttarfélaganna sl. laugardag en hefð er fyrir því að félögin standi fyrir viðburði sem þessum á aðventunni.
Gestir voru á öllum aldri og almenn ánægja með framtakið en auk veitinga var boðið upp á tónlistaratriði þar sem nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur léku jólalög fyrir gesti.