Torfunesbúið tilnefnt sem ræktunarbú ársins 2018Almennt - - Lestrar 443
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau tólf hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, sem ræktunarbú ársins.
hestafrettir.is greinir frá og þar kemur fram að valið hafi staðið á milli 49 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu.
Torfunesbúið í Þingeyjarsveit er eitt þeirra sem tilnefnt er og hér að ofan er Baldvin Kr. Baldvinsson með verðlaunagæðing.
Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2018 sem haldin verður í Spretti, Samskipahöllinni, laugardaginn 27. október næstkomandi.
Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum um kvöldið.
Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:
Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson
Fet, Karl Wernersson
Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Hamarsey, Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos
Íbishóll, Elisabeth Jansen og Magnús B. Magnússon
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir og fjölskylda
Steinsholt, Jakob S. Sigurðsson og Sigurður G. Sigurðsson
Stóra-Vatnsskarð, Benedikt G. Benediktsson
Stuðlar, Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth