Tómas Veigar vann páskaskákmót Hugins á Húsavík

Tómas Veigar Sigurðarson vann öruggan sigur á páskaskákmóti Hugins sem fram fór á Húsavík í gærkvöld.

Tómas Veigar vann páskaskákmót Hugins á Húsavík
Íþróttir - - Lestrar 348

Rúnar, Tómas Veigar og Smári. Lj. skakhuginn.is
Rúnar, Tómas Veigar og Smári. Lj. skakhuginn.is

Tómas Veigar Sigurðarson vann öruggan sigur á páskaskákmóti Hugins sem fram fór á Húsavík í gærkvöld. 

Tómas hafði mikla yfirburði á mótin og lagði alla andstæðinga sína að átta að tölu
 

Smári Sigurðsson varð í öðru sæti með 7 vinninga og Rúnar Ísleifsson varð þriðji með 5,5 vinninga.

Níu keppendur tóku þátt í mótinu og voru tímamörkin 10 mín á mann að viðbættum 5 sek á leik.

Sjá nánar um mótið á heimasíðu Hugins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744