Tímamótaleikur í blaki í dagÍþróttir - - Lestrar 492
Það verður tímamótablakleikur í íþróttahöllinni á Húsavík í dag kl. 15.00 þegar sameinað karlalið Völsungs og Eflingar mætir KA-Ö í bikarkeppni BLÍ í blaki.
Fullgildur blakleikur í karlaflokki hefur ekki farið fram á Húsavík síðan á síðari hluta 20 aldar!
Eins og sjá má á myndinni er baráttuhugur í Þingeyingunum sem ætla sér stóra hluti í bikarnum og eru harðákveðnir í að senda þá gulkæddu aftur heim með öngulinn í rassinum jafnvel þó að þar á meðal séu auðvitað nokkrir barnfæddir Þingeyingar með Lundarbræður Hjört og Davíð Búa Halldórssyni fremsta í flokki.
Bæði liðin lofa góðri skemmtun og hörkubaráttu um áframhaldandi sæti í Kjörísbikarnum og vonast til að sjá sem flesta á bekkjunum