Þrír leikmenn skrifa undir hjá Völsungi - Einn kemur á láni frá KR

Núna um helgina skrifuðu þrír ungir leikmenn undir samninga við karlalið Völsungs í knattspyrnu.

Geirlaugur Árni Kristjánsson.
Geirlaugur Árni Kristjánsson.

Núna um helgina skrifuðu þrír ungir leikmenn undir samninga við karlalið Völsungs í knattspyrnu.

Það voru þeir Daníel Már Hreiðarsson, Kristján Gunnólfsson og Halldór Mar Einarsson sem skrifuðu undir.

Daníel Már og Kristján eru fæddir árið 2000. Daníel er sóknarmaður og Kristján er varnarmaður. 

Halldór Mar er varnar- og miðjumaður sem skipti nýlega yfir í Völsung úr Þór. Hann er fæddur 1998.

Á heimasíðu Völsungs segir að allir séu þetta mjög efnilegir leikmenn sem þegar eru farnir að láta að sér kveða. Framtíðin er greinilega björt hjá Völsungi.

Völsungur gekk nýlega frá lánssamningi á Geirlaugi Árna Kristjánssyni en hann kemur frá KR en samningurinn er út þetta tímabil. Þar er á ferðinni ungur og spennandi leikmaður.

Völsungur

Júlíus Bessaon, Daníel Már, Kristján og Halldór Mar að lokinni undirskrift.

Ljósmynd Völsungur.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744