Tap hjá stelpunum á heimavelli

Völsungsstelpurnar fengu Hött frá Egilstöðum í heimsókn í fyrradag og leikið var á gervigrasvellinum. Fyrsti leikurinn á Húsavíkurvelli í ár.

Tap hjá stelpunum á heimavelli
Íþróttir - - Lestrar 436

Jóney Ósk Sigurjónsdóttir.
Jóney Ósk Sigurjónsdóttir.

Völsungsstelpurnar fengu Hött frá Egilstöðum í heimsókn í fyrradag og leikið var á gervigrasvellinum.

Fyrsti leikurinn á Húsavíkurvelli í ár.

Liðin eru í 3. riðli C-deildar Lengjubikarsins og skemmst er frá því að segja að gestirnir fóru heim með öll stigin sem í boði voru. Þær skoruðu þrjú mörk en Jóney Ósk Sigurjónsdóttir lagaði stöðuna fyrir heimamenn með marki í blálokin. Sem sagt 1-3.

Höttur er á toppi riðilsins með 10 stig eftir fjóra leiki , Tindastóll í öðru með 7 stig eftir þrjá leiki og Völsungur í þriðja sæti með 3 stig eftir þrjá leiki.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744