Tæplega 100 einstaklingar skráðir atvinnulausir í Þingeyjarsýslum

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi á Íslandi í nóvember 3,3%.

60 skráðir atvinnulausir í Norðurþingi.
60 skráðir atvinnulausir í Norðurþingi.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi á Íslandi í nóvember 3,3%.

Að meðaltali voru 5.430 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði um 213 milli mánaða. Þetta kemur fram á heimasíðu stéttarfélaganna í Þingeyjar-sýslum en þar segir jafnframt að á Norðurlandi eystra var hlutfallslegt atvinnuleysi 3,2% sem er aðeins fyrir neðan meðaltalið.

Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum eða 5,1%. Varðandi atvinnuleysið á Norðurlandi eystra þá voru flestir skráðir atvinnulausir í lok nóvember hjá Akureyrarkaupstað eða 317 einstaklingar. 


Á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum voru 99 skráðir atvinnulausir. Flestir í Norðurþingi eða 60, Langanesbyggð 18, Þingeyjarsveit 11, Skútustaðahrepp 8 og samtals voru skráðir 2 í Tjörneshreppi og Svalbarðshreppi.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744