21. des
Tæplega 100 einstaklingar skráðir atvinnulausir í ÞingeyjarsýslumAlmennt - - Lestrar 208
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi á Íslandi í nóvember 3,3%.
Að meðaltali voru 5.430 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði um 213 milli mánaða. Þetta kemur fram á heimasíðu stéttarfélaganna í Þingeyjar-sýslum en þar segir jafnframt að á Norðurlandi eystra var hlutfallslegt atvinnuleysi 3,2% sem er aðeins fyrir neðan meðaltalið.
Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum eða 5,1%. Varðandi atvinnuleysið á Norðurlandi eystra þá voru flestir skráðir atvinnulausir í lok nóvember hjá Akureyrarkaupstað eða 317 einstaklingar.
Á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum voru 99 skráðir atvinnulausir. Flestir í Norðurþingi eða 60, Langanesbyggð 18, Þingeyjarsveit 11, Skútustaðahrepp 8 og samtals voru skráðir 2 í Tjörneshreppi og Svalbarðshreppi.