Survivor í BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 367
Nemendur í Borgarhólsskóla keppa þessa dagana í Survivor. Verkefnið er uppbrot á kennslu í skólanum en farið er í leikinn á þriggja ára fresti.
Það eru nemendur á unglingastigi skólans sem taka þátt í leiknum en hann nær yfir tvo daga og gista nemendur saman. Til að gera dvölina erfiðari nútímamanninum er með öllu óleyfilegt að nota síma eða önnur tæki á meðan leiknum stendur.
„Hugmyndin kviknaði fyrir sex árum en þá keyrðum við þetta fyrst. Síðan hefur verkefnið þróast töluvert og er orðið mjög stórt og viðamikið.“ Segir Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, kennari í Borgarhólsskóla en það eru kennarar og starfsfólk skólans sem sjá um skipulagningu og framkvæmd keppninnar.
640.is leit við í Borgarhólsskóla í gær þar sem fór fram kvöldvaka.
Foreldrar spreyta sig