15. maí
Stelpurnar komnar áfram í bikarnumÍþróttir - - Lestrar 329
Völsungur fékk Sindra í heimsókn í kvöld þegar leikið var í Mjólkurbikar kvenna.
Það leit út fyrir að liðin færu markalaus til hálfleiks en Harpa Ásgeirsdóttir fyrirliði Völsungs sá um að svo færi ekk þegar hún skoraði á 41. mínútu leiksins.
Krista Eik Harðardóttir tvöfaldaði forystuna þegar um hálftími var til leiksloka og þar við sat.
Lokatölur 2-0 fyrir Völsungi og þær grænu komnar áfram í bikarnum.