19. jan
Starfsmenn PCC þjálfa rétt viðbrögð og aðferðir við að slökkva eldAlmennt - - Lestrar 458
Þessa dagana fá starfsmenn PCC BakkiSilicon þjálfun í réttum viðbrögðum og aðferðum við að slökkva eld.
Á fésbókarsíðu PCC BakkaSilikon segir að eftir kynningu á slökkvitækjum hafi verið kveiktur eldur undir handleiðslu slökkviliðs Norðurþings. Starfsmenn kísilversins fengu síðan leiðsögn um hvernig hann væri slökktur á meðan eigin öryggi væri tryggt.
Þessi þjálfun er hluti af mikilvægum samning sem PCC BakkiSilicon hefur gert við slökkviliðið og styrkir undirbúning fyrir gangsetningu kísilversins sem er á næsta leiti.