28. sep
Spá um gasdreifingu - Mengunin frá Tröllaskaga að MelrakkasléttuAlmennt - - Lestrar 90
Á morgun, mánudag, má búast við gasmengun til norðurs og norðvesturs, á svæði frá Tröllaskaga austur að Melrakkasléttu, en þá snýst í hvassa suðaustanátt.
Í nótt snýst vindur smám saman í suðvestalæga átt. Búast má við gasmengun í norðaustur frá gosstöðvunum, yfir Hérað og norðanverða Austfirði.
Sunnan- og suðaustanátt með morgninum og færist þá áhrifasvæðið til vesturs í átt að Eyjafirði. (vedur.is)