20. mar
Sóttu slasaðan vélsleðamann á ReykjaheiðiAlmennt - - Lestrar 344
Björgunarsveitin Garðar á Húsavík var kölluð út eftir hádegi í dag vegna vélsleðamanns sem féll af sleða sínum og slasaðist ofan Höskuldsvatns á Reykjaheiði.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að björgunarsveitamenn hafi hlúð að vélsleðamanninum á slysstað og búið síðan um hann í snjótroðara frá skíðasvæði Húsvíkinga sem fenginn var á vettvang. Snjótroðarinn ók síðan með þann slasaða til móts við sjúkrabíl sem flutti hann á sjúkrahús.