28. júl
Sóley sigraði ljósmyndakeppninaAlmennt - - Lestrar 555
Sóley Sigurðardóttir bar sigur úr býtum í ljósmyndakeppni sem Canon, Nýherji og Bókaverslunar Þórarins stóðu fyrir á Mærudögum.
Viðfangsefnið var sem fyrr Húsavík á Mærudögum og bárust fjölbreytilegar myndir inn í keppnina.
1. verðlaun Sóley Sigurðardóttir.
Sóley tekur við verðlaununum úr hendi Friðriks í Bókabúðinni.
Önnur verðlaun Gaukur Hjartarson.
Gaukur tekur við verðlaunum sínum.
3. verðlaun Jóhann Bjarni Einarsson.
Friðrik afhendir Jóhanni Bjarna verðlaunin.
Myndirnar af verðlaunahöfunum tók Sigurlaug Elmarsdóttir.