Skjálfandi - listahátíð á Húsavík

Skjálfandi - listahátíð á Húsavík við Skjálfanda verður haldin í samkomuhúsinu

Skjálfandi - listahátíð á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 573

Skjálfandi - listahátíð á Húsavík við Skjálfanda verður haldin í samkomuhúsinu föstudagskvöldið 9. júní 2017.

Þetta er í 6. sinn sem hátíðin verður haldin í Norðurþingi, og hefur hátíðin verið haldin síðan árið 2011, og um 50 listamenn tekið þátt í gegnum tíðina - sem dæmi má nefna: Axel Flóvent, Þórir Georg, Steinunn Harðardóttir (dj flugvél og geimskip), Árni Grétar (Futuregrapher), Kira Kira, Ólöf Helga Helgadóttir, Sunneva Ása Weisshappel, Björk Viggósdóttir, Guðmundur Ingi Úlfarsson, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Ragnar Már Nikulásson og Katla Rós, Máni Sigfússon, Vala Ómarsdóttir, Sigurður Arent, Einar Indra, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Þorvaldur Jónsson...

Hátíðin er samstarfsverkefni fjölmargra einstaklinga, hópa, byggðarlaga og listgreina úr Norðurþingi þar sem heimamenn og aðkomufólk leiða saman hesta sína með einlægri og fallegri listahátíð í samkomuhúsinu á Húsavík. Ber þar helst að nefna Sveitarfélagið, Samkomuhúsið Þekkingarnet Þingeyinga, Tónlistarskóla Húsavíkur, Vinnslunnar og Kaldbakskot, en önnur 20 fyrirtæki hafa einnig lagt verkefninu lið frá upphafi.

I kringum Skjálfanda í ár mun Harpa, verkefnastjóri hátíðarinnar, ásamt Rafnari Orra Gunnarssyni leiðbeina á byrjendanámskeiði um hljóð og tónlistarupptökur, sem verður kennt í Tónlistarskólanum miðvikudaginn fyrir hátíð (7. júní). 8 þáttakendur, næstum jafnt af hvoru kyni og á aldrinum 12 - 17 ára, munu sækja námskeiðið. Þátttaka er að kostnaðarlausu. 

Fram koma:
- Karlakórinn Hreimur - tónlist
- Hóffý Ben - tónlist
- Lára Sóley Jóhannsdóttir - tónlist
- rafnar - tónlist
- Best King Kong - tónlist
- Andrea Pétursdóttir - tónlist
- Harpa Ólafsdóttir - tónlist
- Bjork - myndlist
- Halldóra Kristín Bjarnadóttir - ljósmyndun
- Vinnslan - tónlist og leiklist (Harpa Fönn, Biggi Hilmars, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, María Kjartansdóttir og Vala Ómars) 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744