Sigur í hörkuleik í GarðinumÍþróttir - - Lestrar 587
Völsungar lögðu land undir fót og heimsóttu Víði í Garði í 2. deild karla í gær.
Varnarmaðurinn öflugi Victor Svensson kom Völsungi yfir á 16. mínútu leiksins þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Guðmund Óli Steingrímsson tvöfaldaði forystu Völsungs með marki úr vítaspyrnu þegar hálftími var liðinn af leiknum. Markmaður Víðis braut þá á Elvari Baldvinssyni sem sloppinn var í gegn.
Natan Ward jafnaði fyrir heimamenn á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og staðan því 1-2 í hálfleik.
Völsungur náði aftur tveggja marka forystu þegar tæpar tuttugi mínútur voru til leiksloka. Ólafur Jóhann Steingrímsson var nýkominn inn á sem varamaður skipti boltanum glæsilega yfir á Ásgeir Kristjánsson sem lagðann inn fyrir á Bjarka Bladvinsson sem kláraði skemmtilega með að sippa yfir markmanninn. Snaggaralega gert hjá þeim félögum eins og sagði í lýsingu Græna hersins
Heimamenn skoruðu síðan úr vítaspyrnu í uppbótartíma og þar við sat.
Gríðarlega öflugur útisigur hjá Völsungum sem eru með 4 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.