12. des
Síðasti heimaleikur ársins í blakinuÍþróttir - - Lestrar 490
Síðasti heimaleikur Völsungs í Mizunodeild kvenna í blaki fer fram í íþróttahöllinni annað kvöld.
Þá mæta þær KA og er því um að ræða nágrannaslag af dýrustu sort.
Liðin áttust við í október og var sá leikur spennuþrunginn frá upphafi til enda en sigurinn datt því miður vestan megin Víkurskarðs í það skiptið eins og segir á fésbókarsíðu Völsunga.
Liðin deila 5-6 sæti deildarinnar með fimm stig hvort og allar líkur á hörkuleik jafnra liða sem bæði vilja ná sér í betri stöðu fyrir jólafrí.
Heimavöllurinn ásamt diggum stuðningi áhorfenda hefur reynst Völsungsstúlkum vel. Öll fimm stigin hingað til komið á heimavelli í haust í leikjum gegn Aftureldingu og Þrótti Reykjavík.
Völungsstelpur vonast til að sjá sem flesta í stúkunni miðvikudagskvöldið 13. desember kl. 19:30.
Frítt inn - frjáls framlög og sjoppan sívinsæla á staðnum.