23. apr
Seinkun á gangsetningu á BakkaAlmennt - - Lestrar 535
Frá upphafi hefur PCC BakkiSilicon fullyrt að ekki verði gangsett á Bakka nema öll kerfi hafi staðist prófanir.
Það eru ekki orðin tóm, því nú kom í ljós leki á þéttingum meðfram síupokunum í reykhreinsivirkinu, í lokaprófunum á því kerfi. Þetta veldur því að töf verður á gangsetningu fyrri ofnsins.
Í tilkynningu segir að verið sé að útvega varahluti bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum. Ljóst er að þeir koma ekki fyrr en á morgun og miðvikudag og verður því ekki gangsett fyrr en á fimmtudag, föstudag, eða hugsanlega eftir næstu helgi.
PCC BakkiSilocon mun birta nánari upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.