Samrunaviðræður Norðlenska og Kjarnafæðis á ísAlmennt - - Lestrar 309
Samrunaviðræður og vinna við undirbúning samruna Norðlenska annarsvegar og Kjarnafæðis og SAH afurða hinsvegar hefur verið sett á ís.
Í tilkynningu á vef Norðlenska í dag segir að viðræður hafa staðið milli Norðlenska og Kjarnafæðis frá vormánuðum 2018 um mögulegan samruna félaganna.
Formlegt ferli í átt að samruna hófst svo í ágúst 2018. Á þessum tíma hefur aðilum ekki tekist að komast að endanlegu samkomulagi um fyrirkomulag samruna félaganna, menn hafa einfaldlega ekki náð saman og ber enn talsvert í milli.
Viðræðurnar eru því komnar á ís og verður ekki séð að þeim verði fram haldið nema einhver nýr vinkill komi á málið.
Norðlenska hefur því hafið að nýju vinnu við undirbúning nýrrar starfstöðvar félagsins á Akureyri en sú vinna var lögð til hliðar meðan viðræður um sameingu stóðu yfir segir í tilkynningunni