27. okt
Ragnar þjálfar Völsung áframÍþróttir - - Lestrar 369
Knattspyrnudeild Völsungs og Ragnar Hauksson hafa komist að samkomulagi um áframhaldandi samstarf þeirra á milli.
Ragnar mun halda áfram að þjálfa meistaraflokk karla í knattspyrnu og fær það verðuga verkefni að koma Völsungi upp úr 3. deildinni.
Samningurinn er til tveggja ára og var undirritaður fyrir helgi. Stefnt er á að æfingar hefjist á nýjan leik í nóvember og fer þá á fullt undirbúningur fyrir 3. deildina að ári.
Fyrsta verkefni meistaraflokks karla á nýju ári er árlegt æfingamót sem haldið er í Boganum í janúar ár hvert. (volsungur.is)