20. sep
Rafnar Máni valinn á úrtaksæfingar U17Íþróttir - - Lestrar 723
Völsungurinn Rafnar Máni Gunnarsson er einn þeirra leikmanna sem valdir hafa verið til þátttöku á úrtaksæfingum vegna U17 landsliðs karla.
Æfingarnar fara fram í Reykjavík dagana 27- 29 september undir stjórn Davíðs Snorra Jónassonar, þjálfara U17 ára landsliðs karla.
Rafnar Máni, sem er fæddur árið 2002, hefur ásamt því að æfa með meistaraflokki leikið með 2. flokki Völsungs í sumar.