01. apr
Rafmögnuð stemning hjá NorðursiglinguAlmennt - - Lestrar 497
Í samræmi við stefnu Norður-siglingar um umhverfisvæna starfsemi keypti fyrirtækið nýlega tvo VW e-Golf rafmagnsbíla.
Bílarnir verða notaðir á söluskrifstofu félagsins í Reykjavík og á aðalskrifstofunni á Húsavík.
Á heimasíðu Norðursiglingar segir að merking bílanna þykir hafa heppnast einstaklega vel og voru það auglýsingastofan Blokkin og Áberandi sem sáu um hönnun og merkingu.
e-Golf rafmagnsbílarnir voru merktir með myndum frá hvalaskoðun og ævintýraferðum ásamt því að endurspegla áherslur Norðursiglingar í umhverfismálum.
F.v. Birna Lind Björnsdóttir sölustjóri Norðursiglingar, Árni Þorsteinsson sölustjóri nýrra bíla hjá Heklu og Heimir Harðarson skipstjóri hjá Norðursiglingu handsala kaupin á tveimur nýjum e-Golf.
Samhliða þessum kaupum standa yfir breytingar á seglskipinu Opal í Húsavíkurslipp, þar sem verið er að setja um borð nýtt rafmagnskerfi, rafhlöður og drif. Lesa nánar hér
Meðfylgjandi myndir eru fengnar af heimasíðu Norðursiglingar.