Ráðið hefur verið í starf fjölmenningarfulltrúa

Nele Marie Beitelstein hefur verið ráðin í starf fjölmenningarfulltrúa Norðurþings.

Nele Marie Beitelstein.
Nele Marie Beitelstein.

Nele Marie Beitelstein hefur verið ráðin í starf fjölmenningarfulltrúa Norðurþings.

Nele er með BA gráðu Visual arts, music og Fjölmiðlun og MA próf í Hagnýt fjölmiðla og Menningarfræðum frá háskólanum í Merseburg í Þýskalandi.

Í tilkynningu á heimasíðu Norðurþings kemur einnig fram að Nele hefur starfað í ferðaþjónustu og nú síðast sinnt stöðu fjölmenningarfulltrúa sveitarfélagsins í afleysingu.

Nele hefur sinnt félagsstörfum fyrir Rauða krossinn og hefur einnig kennt jóga.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744