17. nóv
Opnir fundir um Þeistareykjavirkjun 19. nóvemberFréttatilkynning - - Lestrar 229
Landsvirkjun leggur áherslu á opin samskipti við hagsmuna-aðila og býður til tveggja íbúafunda þann 19. nóvember næstkomandi.
Fundirnir verða á Fosshótel Húsavík kl. 17.15 og í Ýdöluml í Aðaldal kl. 20.30
Á fundinum munu fulltrúar Landsvirkjunar kynna framgang framkvæmda á Þeistareykjum og umhverfisvöktun á svæðinu. Einnig mun fulltrúi frá Náttúrustofu Norðausturlands fjalla um gróður- og fuglavöktun á svæðinu.
Markmið opinna funda Landsvirkjunar er að stuðla að gagnsærri og faglegri umræðu um málefni tengd starfsemi fyrirtækisins. (landsvirkjun.is)