27. feb
Óli Hákon Hertervig ráðinn forstöðumaður Sundlaugarinnar á LaugumAlmennt - - Lestrar 465
Óli Hákon Hertervig hefur verið ráðinn forstöðumaður Sundlaugarinnar á Laugum og hóf hann störf 19. febrúar sl.
Óli Hákon er 31 árs gamall heimspekinemi, búsettur á Jarlstöðum í Aðaldal. Sambýliskona hans er Sólrún Sveinbjörnsdóttir.
Á heimasíðu Þingeyjarsveitar er Óli Hákon boðinn velkominn til starfa um leið og Írisi Bjarnadóttur er þakkað fyrir vel unnin störf en hún mun ljúka störfum sem forstöðumaður um n.k. mánaðarmót.