Norðurþing bætist í hóp heilsueflandi samfélaga

Norðuþing bættist í hóp heilsueflandi samfélaga í gær þegar Birgir Jakobsson, landlæknir og Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings skrifuðu

Birgir Jakobsson og Kristján Þór Magnússon.
Birgir Jakobsson og Kristján Þór Magnússon.

Norðuþing bættist í hóp heilsueflandi samfélaga í gær þegar Birgir Jakobsson, landlæknir og Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings skrifuðu undir samning þess efnis.

Undirskriftin fór fram í tengslum við málþing sem haldið var hér á Húsavík undir yfirskriftinni „Gerum gott samfélag betra" þar sem fjallað var um jákvæðan aga og forvarnir í sveitarfélaginu. 

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Á heimasíðu landlælknisembættisins segir að með undirritun þessa samningsins bætist Norðurþing í hóp þeirra sveitarfélaga sem skuldbinda sig til þess að efla heilsu og vellíðan íbúa sinna á markvissan hátt. Alls taka sextán sveitarfélög nú formlega þátt í starfi Heilsueflandi samfélags og fleiri eru í startholunum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744