04. sep
Norðursigling afhendir föt fyrir Hrókinn í IttoqqortoormiitAlmennt - - Lestrar 319
Áhöfnin á skútu Norðursiglingar, Hildi, tók nýlega að sér að ferja fatasendingu frá Húsavík til þorpsins Ittoqqortoormiit á austurströnd Grænlands.
Það er Skákfélagið Hrókurinn í Reykjavík sem stendur á bak við þessa fatasendingu sem ætluð er íbúum í þorpinu sem margir hverjir búa við bág kjör.
Skútur Norðursiglingar hafa á leið sinni frá Húsavík að austurströnd Grænlands flutt fatasendingar með sambærilegum hætti mörg undanfarin ár.
Fötin koma að góðum notum í hinu afskekkta þorpi og á Fésbókarsíðu Norðursiglingar segir að það sé heiður fyrir fyrirtækið að taka þátt í þessu verkefni með Hróknum enn eitt árið.